STOLTUR DREIFINGRAÐILI CBD ASYLUM Á ÍSLANDI

ÞRÍR FYRIR TVEIR AF ÖLLUM VÖRUM

SKILMÁLAR

FVN ehf.

Kt. 550616-1650
VSK. 125388
Fákafen 11. 108 Reykjavík, Ísland
cbdasylum@cbdasylum.is

Greiðsla

Kaupandi getur innt greiðslu af hendi með kreditkorti eða debetkorti. Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd.

Kaupandin getur borgað fyrir vöru með, kreditkorti, debetkorti, Netgiro, Aur, Millifærslu eða með peningum (ATH, aðeins hægt að borga með peningum ef valið er um að sækja vöru) 

Kortafærslur eru dulkoóðaðar.

Afhending vöru

Frí heimsending eru á öllum vörum hjá okkur og kemur hún samdægur ef pantað er fyrir klukkan 15:00

ATH Viðskipta vinur ber sjálfur ábyrgð á að gefa upp rétt póstfang eða rétt merkta póstkassa eða póstlúgur,

Ef varan er ekki til hjá okkur munum við tilkynna þér það og bjóða uppá að skipta henni út fyrir aðra vöru, Fá endurgreitt eða tilkynna um áætaðan afhendingartíma 

Vöruskil

Hætt við pöntun: 

Viljir þú hætta við pöntun sem gerð var í gegnum vefverslun þarf að hringja í okkur eða senda tölvupóst.

Við endurgreiðum vöruna að fullu ef hún hefur ekki farið úr húsi, en ef varan hefur verið send af stað fæst hún endurgreidd þegar viðskiptavinur hefur sent hana til baka til okkar.

Athugið að ef hætt er við pöntun eftir að vara er send af stað fæst hún ekki endurgreidd að fullu heldur er upphæðin endurgreidd að frádregnum sendingarkostnaði. Viðskiptavinur ber einnig kostnað af endursendingu til okkar.

Skilafrestur: 

Viðskiptavinir hafa 14 daga frá afhendingadegi til þess að skila vöru. Viðskiptavinur ber ábyrgð á þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar að meðferð hennar, sem ekki telst nauðsynleg til að staðfesta einkenni, eiginleika og virkni. Enn fremur þurfa allir fylgihlutir og handbækur að fylgja með vöru..  

Innan 14 daga fæst varan endurgreidd að fullu að frádregnum sendingarkostnaði ef við á. 

Finna má staðlaðar leiðbeiningar og uppsagnareyðublað á neytendasamningi í viðauka 1 og 2 í reglugerð nr. 435/2016 um upplýsingar um nýtingu réttar til að falla frá samningi.

 

Eftir 14 daga fæst vöru ekki skilað.

ATH aðeins hægt að skila vöru ef innsigli er ekki rofið Þetta er gert vegna lýðheilsusjónarmiða og hreinlætisástæðum.

Gallar og annað

  • Ef við afhendum ranga vöru skal hafa samband við okkur. Viðskiptavinur skal senda vöruna til baka óopnaða á okkar kostnað og við sendum rétta vöru til viðskiptavinar. Það er á ábyrgð viðskiptavinar að athuga hvort rétt vara hafi verið afhend áður en vara er tekin úr pakkningu.
  • Ef vara reynist gölluð, fæst henni skipt fyrir sömu vöru eftir skoðun hjá okkur sé það gert innan 2ára frá afhendingadegi. Ef sama vara er ekki til á lager fæst sambærileg vara í staðin.
  • Það er á ábyrgð viðskiptavinar að kanna hvort varan virki eins og hún á að gera.
  • Ef viðskiptavinur telur vöru gallaða þurfum við að fá hana afhenta til skoðunar. Reynist vara ekki gölluð við skoðun hjá okkur þá er vara endursend á kostnað viðskiptavinar.
  • Ef varan virkar ekki með „Þinni“ vöru sem ekki er keypt hjá okkur en virkar á okkar vörum, telst það ekki galli á okkar vöru.
  • Til að skila til okkar gallaðri vöru þarf að senda hana til okkar vel innpakkaðri. Einnig þarf að framvísa sönnun fyrir kaupum ásamt kennitölu, nafni og símanúmeri.  Upplýsingar skulu fylgja með sem og lýsingu á galla.
  • Við berum ekki ábyrgð á glötuðum sendingum sem sendar eru til okkar.
  • Viðskiptavinir sem reyna að skila klónuðum vörum, þ.e vörum sem eru eftirlíkingar eða vörum sem ekki eru keyptar hjá okkur og ekki gerðar af framleiðendum sem við styðjum og seljum frá, munu fá vöruna endursenda til sín á eigin kostnað, og þeir viðskiptavinir munu ekki lengur fá að versla á vefsíðu okkar né í verslun og málið meðhöndlað sem vörusvik samkvæmt lögum.
  • Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur

    Komi upp ágreiningur milli neytenda og seljenda er varða samningsbundna skyldu sem rís af sölu- eða þjónustusamningi er einnig hægt að hafa samband við Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa: kvth.is

  • Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.

Við fögnum ábendingum varðandi skilmála þessa og viljum ávallt veita viðskiptavinum okkar bestu mögulegu þjónustuna. Ef eitthvað er óskýrt máttu endilega hafa samband við okkur.

Vöruverð

Vinsamlega athugið að vöruverð getur breyst án fyrirvara. Öll verð eru gefin upp með virðisaukaskatt.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Scroll to Top